Ábyrg spilun

Fyrir þá sem ákveða að spila er mikilvægt að taka meðvitaðar ákvarðanir og spila af ábyrgð. Með ábyrgri spilun er átt við að fólk taki upplýstar

Ábyrg spilun

Fyrir þá sem ákveða að spila er mikilvægt að taka meðvitaðar ákvarðanir og spila af ábyrgð. Með ábyrgri spilun er átt við að fólk taki upplýstar ákvarðanir um spilun sína, sem um leið gerir spilun skemmtilegri og minnkar áhættuna á spilavanda.


Hér eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga áður en spilað er:

  • Ákveða hversu miklu þú ert tilbúin að eyða og tapa og ekki víkja frá því.
  • Ekki eyða peningum sem eru ætlaðir til annarra nota, í spilun.
  • Ákveða hversu lengi skal spila (ef það á við) og standa við það.
  • Muna, að ef þú ferð yfir takmörk þín varðandi tíma og þá upphæð sem spila skal fyrir, aukast í raun líkurnar á að þú tapir enn meira af peningum.
  • Ekki fara í hraðbanka til að taka út meira fé, hvort sem er af debit- eða kreditkorti.
  • Ekki fá lánaða peninga til spilunar.
  • Muna að vinningslíkur í peningaspilum taka engum breytingum meðan spilað er.
  • Ekki hugsa um peningaspil sem leið til að græða peninga, heldur sem skemmtun.


Hér eru atriði sem er gott að hafa í huga á meðan spilað er:

  • Vera meðvituð/aður um að tap á fé er eðlilegur þáttur í peningaspilum. Ef þú upplifir reiði eða ergelsi vegna taps þá þarft þú að endurskoða þátttöku þína í peningaspilum.
  • Reyndu að komast hjá því að reyna að elta uppi tapað fé. Mjög líklegt er að þá tapir þú enn meiru fé.


Atriði sem gott er að hafa í huga að lokinni spilun:

  • Skoðaðu vel þau tíma/peninga mörk sem þú settir þér í byrjum. Stóðst þú við þau markmið? Ef ekki, þá ættir þú að velta fyrir þér ástæðum þess, t.d. íhuga hvort og hvaða breytingar þú þarf að gera á þinni hegðun áður en þú spilar næst.
  • Hvernig líður þér að lokinni spilun? Upplifir þú oft leiða, depurð eða samviskubit? Mundu að afþreying á að vera skemmtileg og ef hún hættir að vera það, skalt þú endurskoða þátttöku þína í peningaspilum.

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf