Ábyrg spilun

Spilafíkn er stjórnlaus þátttaka í peningaspilum sem hefur alvarlegar afleiðingar. Andleg vanlíðan, þunglyndi, kvíði eða streita eru algengir fylgifiskar

Spilavandi og spilafíkn

Spilafíkn er stjórnlaus þátttaka í peningaspilum sem hefur alvarlegar afleiðingar. Andleg vanlíðan, þunglyndi, kvíði eða streita eru algengir fylgifiskar spilafíknar og spilafíklar misnota oft áfengi eða önnur vímuefni. Spilafíkill er iðulega upptekinn af þrálátum þönkum um peningaspil og hugsar um leiðir til þess að spila áfram, gjarnan í þeim tilgangi að endurheimta glatað fé. Þetta eykur aðeins fjárhagslegan skaða þannig að við andlega vanlíðan bætist oft gjaldþrot. Skaðlegar afleiðingar spilafíknar eru vel þekktar og bitna ekki aðeins á fíklinum sjálfum heldur líka á fjölskyldu hans og samfélaginu öllu. 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf