Ábyrg spilun

Ábyrgspilun.is er í eigu og rekin af Íslandsspilum, Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ), Íslenskri getspá og Íslenskum getraunum. Síðan var upphaflega sett á

Almennar upplýsingar

Ábyrgspilun.is er í eigu og rekin af Íslandsspilum, Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ), Íslenskri getspá og Íslenskum getraunum. Síðan var upphaflega sett á laggirnar árið 2002 og þá fjármögnuð af Íslandsspilum og HHÍ, en síðar í breyttri mynd haustið 2009 í samstarfi þriggja fyrrnefndra fyrirtækja.

Íslandsspil starfrækir söfnunarkassa á landsvísu og rennur allur ágóði af starfseminni til Rauða kross Íslands, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og SÁÁ. HHÍ eru einnig með skjávélar og auk þeirra skafmiða og flokkahappdrætti og rennur ágóði til byggingaframkvæmda og tækjakaupa fyrir Háskóla Íslands. Íslensk getspá starfrækir Lottó og rennur ágóði Íslenskrar getspár til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Öryrkjabandalags Íslands og Ungmennafélags Íslands. Ágóði Íslenskra getrauna rennur til íþróttahreyfingarinnar.

Öll fyrirtækin, sem og önnur lögleg happdrætti á Íslandi, starfa eftir reglugerðum og innan lagaramma frá Dómsmálaráðaneyti. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum fyrirtækjanna, Íslandsspila, HHÍ og Íslenskra getrauna.

Vakin er sérstök athygli á því að lágmarksaldur fyrir allar tegundir peningaspila sem fyrirtækin bjóða upp á er 18 ár.

Markmið síðunnar er að hægt sé að nálgast fjölbreyttar upplýsingar um peningaspil með góðu móti. Leitast er við að allt efni síðunnar sé áreiðanlegt, heimildir séu ávallt traustar og hlutleysis sé gætt í allri umfjöllun.

Síðan er unnin í samstarfi Auðar Sigrúnardóttur MA í sálfræði og Dr. Daníels Þórs Ólasonar, Dósents í sálfræði við Háskóla Íslands. Daníel er hefur varið miklum tíma í rannsóknir og skrif um spilavanda og stendur einna fremstur fræðimanna á Íslandi í þessum málaflokki.

Athugasemdir eða fyrirspurnir sendist á abyrgspilun@abyrgspilun.is


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf